Laugardagur, 13. desember 2014 18:31 |
Á lan dsmóti STÍ sem haldið var á Borgarnesi í dag, sigraði Jórunn Harðardóttir í loftskammbyssu kvenna með 368 stig og Ásgeir Sigurgeirsson sigraði í karlakeppninni með 575 stig. Eins vann Margrét Skowronski í loftskammbyssu unglinga með 294 stig og Jórunn Harðardóttir vann einnig loftriffilkeppnina með 392,7 stig. Frábær árangur hjá okkar keppendum í dag og er skor Ásgeirs og bæði skor Jórunnar yfir gildandi Ólympíulágmarki (MQS). Þau eru öll í Skotfélagi Reykjavíkur. Í loftskammbyssu karla varð Thomas Viderö SFK annar (559) og Ívar Ragnarsson SFK þriðji (553). Í loftskammbyssu kvenna varð Bára Einarsdóttir SFK önnur (346) og Guðrún Hafberg varð þriðja (323). Arnar H. Bjarnason úr SFK keppti í unglingaflokki í loftriffli og bætti þar eigið Íslandsmet með 420 stig. Í loftriffli karla sigraði Theódór Kjartansson úr SK með 555,7 stig, annar varð Logi Benediktsson úr SFK með 547,4 stig og í þriðja sæti Þorsteinn Bjarnarson úr SR með 464,4 stig. Í liðakeppni karla í loftskammbyssu sigraði A-sveit SFK með 1,665 stig, A-sveit SR varð önnur með 1,614 stig og í þriðja sæti A-sveit SKV með 1,523 stig. Þetta var fyrsta landsmót Skotíþróttasambands Íslands sem haldið er í nýrri skotaðstöðu Skotfélags Vesturlands á Borgarnesi.
|
|
Föstudagur, 12. desember 2014 07:50 |
Hérna er riðlaskipting loftbyssumótsins á Borgarnesi á laugardaginn. Keppt verður í 3 riðlum sem hefjast kl.10:00, 12:00 og 14:00
|
Föstudagur, 12. desember 2014 07:45 |
Riðlaskipting landsmótsins í 60 skotum liggjandi rifflinum er komin hérna. Þetta verða 3 riðlar sem hefjast kl.10:00, 11:45 og 13:30
 
|
Þriðjudagur, 09. desember 2014 09:16 |
Opið verður til æfinga fyrir keppendur á landsmótinu á sunnudaginn í 60 skotum liggjandi riffli eftir kl.21 á fimmtudaginn og svo keppnisæfing á laugardaginn, nánari tímasetning kemur seinna í vikunni.
|
Mánudagur, 08. desember 2014 08:05 |
Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur sigraði á Landsmóti STÍ í Frjálsri skammbyssu sem haldið var í Kópavogi á laugardaginn. Hann skoraði 552 stig. Í öðru sæti varð Guðmundur Helgi Christensen úr SR með 472 stig og Jórunn Harðardóttir úr SR varð þriðja með 465 stig.
|
Sunnudagur, 23. nóvember 2014 19:55 |
Á landsmóti STÍ í 60 skotum liggjandi riffli, sem haldið var í Kópavogi í dag, sigraði Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur í kvennaflokki á nýju Íslandsmeti, 616,8 stig. Í öðru sæti varð Bára Einarsdóttir úr SFK með 600,4 stig. Í karlaflokki sigraði Arnfinnur Jónsson úr SFK með 613,5 stig, Guðmundur Helgi Christensen úr SR varð annar með 609,4 stig og í þriðja sæti Jón Þór Sigurðsson úr SFK með 608,5 stig. Í liðakeppninni sigraði SFK með 1830,2 stig, sveit SÍ varð önnur með 1785,5 stig og í þriðja sæti sveit SK með 1726,3 stig.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 131 132 133 134 135 136 137 138 139 140 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 134 af 296 |