Sunnudagur, 26. maí 2013 09:02 |
Ásgeir Sigurgeirsson hafnaði í 22.sæti í frjálsu skammbyssunni í morgun en 70 kepptu. Skorið var ágætt eða 93 91 93 96 91 89. Hann tekur svo þátt í loftskammbyssukeppninni á þriðjudaginn.
|
|
Laugardagur, 25. maí 2013 15:18 |
Eftir ársþing Skotíþróttasambands Íslands sitja þessir í stjórn þess næsta árið. Í aftari röð f.v. Jórunn Harðardóttir í varastjórn, Jóhann A.Kristjánsson og Guðmundur Kr Gíslason í aðalstjórn og Sigurgeir Arnþórsson í varastjórn. Í neðri röð f.v. Kjartan Friðriksson í aðalstjórn, Halldór Axelsson formaður og Jón S. Ólason í aðalstjórn.
|
Laugardagur, 25. maí 2013 08:31 |
Á heimbikarmótinu sem haldið er í München, Þýskalandi þessa dagana, keppti Ásgeir Sigurgeirsson í undanrásum í Frjálsri skammbyssu í morgun og komst áfram með glæsibrag. Hann skoraði 554 stig og varð í 10.sæti af 44 sem tóku þátt í fyrri riðlinum. Seinni riðillinn hefst núna kl.09:15 og eru þar aðrir 50 keppendur. Aðalkeppnin hefst svo í fyrramálið kl. 06:15 að okkar tíma.
|
Fimmtudagur, 23. maí 2013 16:11 |
27. Landsmót UMFÍ á Selfossi 4.-7. júlí Fyrstu helgina í júlí verður 27. Landsmót UMFÍ haldið á Selfossi. Undirbúningur vegna mótsins hefur staðið yfir í langan tíma og stefnir Héraðssambandið Skarphéðinn á að halda glæsilegt mót. Mikil og metnaðarfull uppbygging íþróttamannvirkja hefur orðið á Selfossi á undanförnum árum og er óhætt að segja að sú aðstaða sem verður í boði fyrir keppendur á þessu móti sé ein sú besta á landinu. Sveitarfélagið Árborg hefur unnið ötullega að þessari uppbyggingu og lagt sitt á vogarskálarnar til að gera mótið sem glæsilegast. Landsmótin hafa í gegnum tíðina verið glæsilegar íþróttahátíðir og keppnisgreinar margar, bæði hefðbundnar og óhefðbundnar. Á síðasta Landsmóti, sem haldið var 2009, voru keppendur um tvö þúsund og gert er ráð fyrir svipuðum fjölda á Selfossi í ár.
|
Nánar...
|
Fimmtudagur, 23. maí 2013 15:54 |
Herrifflakeppninni hefur verið frestað um eina viku vegna slæmrar veðurspár. Keppnin fer því fram sunnudaginn 2.júní n.k.
|
Miðvikudagur, 15. maí 2013 15:36 |
Greiðslukröfur vegna árgjalds félagsins fyrir árið 2013 verða sendar í heimabanka félagsmanna í dag og á morgun. Árgjaldið er óbreytt kr. 12,000. Ef þið fáið ekki kröfu þá sendið okkur tölvupóst með upplýsingum um ykkur á :
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 171 172 173 174 175 176 177 178 179 180 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 177 af 296 |