Laugardagur, 22. mars 2014 16:47 |
  Á Íslandsmótinu í Staðlaðri skammbyssu sem haldið var í Egilshöllinni í dag varð Karl Kristinsson úr Skotfélagi Reykjavíkur Íslandsmeistari, með 525 stig, annar varð Friðrik Þ. Goethe með 514 stig og í 3ja sæti Eiríkur Ó. Jónsson úr Skotfélagi Kópavogs með 510 stig. Í liðakeppninni sigraði A-sveit Skotfélags Reykjavíkur með 1,494 stig (Karl Kristinsson 525, Engilbert Runólfsson 495 og Kristína Sigurðardóttir 474). Í öðru sæti A-sveit Skotfélags Kópavogs með 1,484 stig (Friðrik Þ.Goethe 514, Eiríkur Ó.Jónsson 510 og Emil Kárason 460). Í þriðja sæti varð svo sveit Skotfélags Akureyrar með 1,396 stig (Grétar M.Axelsson 509, Finnur Steingrímsson 454 og Guðlaugur B.Magnússon 433). Íslandsmeistarar í flokkum voru einnig krýndir en þeir eru í 2.flokki Karl Kristinsson úr SR, í 3.flokki Friðrik Þ.Goethe úr SFk og í 0.flokki Karl Einarsson úr SFK. Frekari upplýsingar og myndir komnar hérna. Nýtt 25.Mars  MYNDBAND Â /gkg
|
|
Miðvikudagur, 19. mars 2014 10:18 |
Metþátttaka er á Íslandsmótinu í Staðlaðri skammbyssu sem fram fer í Egilshöllinni á laugardaginn. 27 keppendur eru skráðir til leiks frá fjórum félögum. Skotfélag Reykjavíkur er með 12 keppendur, Skotfélag Kópavogs með 9, Skotfélag Akureyrar með 5 og Skotdeild keflavíkur með 1 keppanda. Vegna þessa mikla fjölda mun fyrsti riðill hefjast kl. 09:00 og er gert ráð fyrir 1 klst og 15 mínútum á hvern riðil. Mótagjaldið er kr. 3,500 á Íslandsmótinu. Riðlaskiptingin er komin hérna. Keppnisæfing er kl.18-20 á föstudaginn  /gkg
|
Þriðjudagur, 18. mars 2014 21:08 |
Það er bilun á póstþjóni okkar þannig að
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
virkar ekki. Hægt er að senda póst til félagsins á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
á meðan á viðgerð stendur !!
|
Þriðjudagur, 18. mars 2014 14:33 |
LOKAÐ er vegna veðurs á Álfsnesi í dag !!
|
Þriðjudagur, 18. mars 2014 07:59 |
Skráningu á Íslandsmótið í Staðlaðri skammbyssu, sem haldið verður í Egilshöllinni á laugardaginn, lýkur í dag. Félagsmenn okkar sendi skráningu sína á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
en aðrir til sinna félaga. Lokað verður í Egilshöllinni fyrir aðrar æfingar.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 151 152 153 154 155 156 157 158 159 160 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 151 af 296 |