Ásgeir kominn í 20.sæti á heimslistanum Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 29. desember 2012 22:06

asgeir lon2012 airÁsgeir Sigurgeirsson fór í dag uppí 20.sæti á lista Alþjóða Skotíþróttasambandsins yfir bestu loftskammbyssuskotmenn í heimi. Hann hlaut einnig viðurkenningu í hófi íþróttafréttamanna og ÍSÍ sem haldið var í kvöld og endaði þar í 8. sæti í kjörinu til Íþróttamanns Ársins 2012.

AddThis Social Bookmark Button
 
ÁLFSNES lokað laugardag en opið á SUNNUDAG Skoða sem PDF skjal
Föstudagur, 28. desember 2012 15:39

Vegna slæmrar veðurspár verður lokað á Álfsnesi á morgun, laugardag. Í staðinn notfærum við okkur ákvæði í starfsleyfi og höfum opið á SUNNUDAG 30.des kl. 12-16

AddThis Social Bookmark Button
 
Skotíþróttamenn ársins 2012 Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 27. desember 2012 15:34

Skotíþróttasamband Íslands hefur valið eftirtalda sem Skotíþróttamenn ársins 2012 :

Skotíþróttakarl Ársins er:   Ásgeir Sigurgeirsson úr Skotfélagi Reykjavíkur.

Hann sigraði á flestum þeim mótum sem hann keppti í á
árinu hérlendis. Hann varð bæði Íslands-og Bikarmeistari í sínum greinum. Hann
keppti í tveimur greinum á Ólympíuleikunum í London og varð þar í 14.sæti í
Loftskammbyssu og í 32.sæti Frjálsri skammbyssu. Hann tók þátt í fjölda
alþjóðlegra móta árinu. Hann varð meðal annars í öðru sæti á einu sterkasta
mótinu IWK í München í janúar. Einnig hafnaði hann í 22.sæti á
Evrópumeistaramótinu í Finnlandi í febrúar og í 23.sæti á Heimsbikarmótinu í
München í lok maí.
Ásgeir er nú í lok desember í 21.sæti á heimslistanum
í Loftskammbyssunni og í 47.sæti í Frjálsri skammbyssu. Á Evrópulistanum er
hann í 14.sæti í Loftskammbyssu og í 29.sæti í Frjálsri skammbyssu.


Skotíþróttakona Ársins er: Jórunn Harðardóttir úr Skotfélagi Reykjavíkur.

Jórunn er jafnvíg á riffil og skammbyssu. Hún varð
Íslandsmeistari í Loftriffli, Loftskammbyssu, Staðlaðri skammbyssu og enskum
riffli. Einnig varð hún Reykjavíkurmeistari í Loftskammbyssu. Hún setti
Íslandsmet í Loftskammbyssu 374 stig og í enskum riffli með final 673,5 stig.
Einnig jafnaði hún Íslandsmetið í Loftriffli 383 stig.

AddThis Social Bookmark Button
 
Gleðileg Jól Skoða sem PDF skjal
Mánudagur, 24. desember 2012 18:06

Stjórn félagsins óskar félagsmönnum Gleðilegra Jóla.

AddThis Social Bookmark Button
 
Ásgeir Sigurgeirsson í hópi 10 bestu íþróttamannanna Skoða sem PDF skjal
Laugardagur, 22. desember 2012 15:55

gkg_1319Ásgeir Sigurgeirsson er fyrstur íslenskra skotíþróttamanna til að komast inná lista íþróttafréttamanna yfir 10 bestu íþróttamenn landsins. Röð efstu manna verður svo kynnt í hófi Íþrótta-og Ólympíusambands Íslands og Félags íþróttafréttamanna sem haldð verður þann 29.desember.

AddThis Social Bookmark Button
 
Skránig í Áramótið í Riffli... Skoða sem PDF skjal
Fimmtudagur, 20. desember 2012 11:18

Athugið að skráningu í Áramótið í Riffli lýkur í dag. Sjá upplýsingr um mótið hér að neðan...

AddThis Social Bookmark Button
 
<< Fyrsta < Fyrri 181 182 183 184 185 186 187 188 189 190 Næsta > Síðasta >>

Síða 181 af 287

Á Döfinni

Auglýsing
Álfsnes - leiðarvísir
Auglýsing
Álfsnes - Skotsvæði
Auglýsing
Egilshöll - 50m salur
Auglýsing
Egilshöll - Loftbrautir
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing
Auglýsing