| 
					
		 | 
	
		
		
							
					
	| 
		Mánudagur, 30. maí 2011 10:12	 | 
 
| 
 Fimmtudaginn 2. júní, uppstigningardag, verður félagið 144 ára. Í tilefni dagsins verður boðið uppá kaffi og rjómavöfflur á Álfsnesi. Opið verður frá kl 12 - 17 á afmælisdaginn. 
 | 
 
 
 
	| 
		Laugardagur, 28. maí 2011 18:22	 | 
 
| 
 Nú líður senn að fyrsta hreindýranámskeiðinu í sumar. Reiknum með að þau hefjist uppúr miðjum Júní en það verður auglýst þegar nær dregur. Námskeiðin hafa verið afar vinsæl meðal tilvonandi hreindýraveiðimanna og annrra sem áhuga hafa á slíkum veiðum. Kennarar verða sem áður þeir Jóhann Vilhjálmsson og Vignir J. Jónasson. 
 | 
 
 
 
	| 
		Föstudagur, 27. maí 2011 15:52	 | 
 
| 
 Á mánudaginn hefjast Smáþjóðaleikarnir í Liechtenstein. Við eigum þar 3 keppendur, þau Ásgeir Sigurgeirsson, Jórunni Harðardóttur og Guðmund Helga Christensen. Við flytjum af þeim fréttir jafnóðum og þær berast. 
 | 
 
 
 
	| 
		Föstudagur, 27. maí 2011 15:50	 | 
 
| 
  Grafarvogsdagurinn er á morgun laugardag. Opið verður hjá okkur í Egilshöllinni kl.10-13 þar sem gestir geta fengið að prófa að skjóta úr loftrifflum. Aldurstakmark er 15 ára en þeir sem eru 15-18 ára þurfa að koma með skriflegt leyfi frá foreldrum til að geta prófað ! 
 | 
 
 
 
	| 
		Föstudagur, 27. maí 2011 15:24	 | 
 
| 
 Keppnismannaæfing í skeet verður miðvikudaginn 1.júní og hefst kl.17. Allir sem hug hafa á að taka þátt í mótum með okkur eru hvattir til að mæta og taka þátt. Okkar bestu leiðbeinendur verða á staðnum. 
 | 
 
 
 
				 | 
				
		 
		 
	 | 
	
		<< Fyrsta < Fyrri 231 232 233 234 235 236 237 238 239 240 Næsta > Síðasta >>		
  
	 | 
	| 
		Síða 236 af 298	 |