|
Fimmtudagur, 12. febrúar 2015 20:18 |
Á Reykjavíkurmótinu í loftbyssugreinunum sem haldið var í Egilshöllinni í gærkvöldi sigraði Ásgeir Sigurgeirsson í karlaflokki og Jórunn Harðardóttir í kvennaflokki, í loftskammbyssu. Margrét Skowronski sigraði í unglingaflokki. Í loftriffli karla sigraði Guðm. Helgi Christensen og í kvennaflokki Íris Eva Einarsdóttir. Arnar Hörður Bjarnarson sigraði í unglingaflokki.
|
Mánudagur, 09. febrúar 2015 19:09 |
Reykjavíkurmótið í loftbyssugreinunum fer fram í Egilshöllinni á miðvikudaginn 11.febrúar. Það hefst kl.17. Keppendur geta mætt á bilinu 17 til 19:30 og hafið keppni, eftir því sem pláss er á brautum. Ekki er því um eiginlega riðla að ræða. Keppnisæfing skráðra keppenda verður á morgun þriðjudag kl.19-21.
|
Sunnudagur, 08. febrúar 2015 12:09 |
Í úrslitakeppni þýsku Bundesligunnar sem fram fór um helgina endaði lið Ásgeirs Sigurgeirssonar í 5.sæti en 8 lið komust í úrslitakeppnina. Lið hans, TSV Ötlingen, tapaði sínum leik við Braunschweiger SG með 2:3. Ásgeir vann sinn keppinaut, Evrópumeistarann Oleg Omelchuk frá Úkraínu með 381 stigi gegn 378 en það dugði ekki til því 3 félagar Ásgeirs töpuðu sínum viðureignum og komust því ekki áfram. Nánari úrslit má finna hérna.
|
Föstudagur, 06. febrúar 2015 10:27 |
Janúar hefti fréttabréfs Smáþjóðaleikanna er komið út og er aðgengilegt hérna.
|
Mánudagur, 02. febrúar 2015 19:53 |
Þorrakvöldið verður haldið í skotsalnum í Egilshöllinni svo fremi sem næg þátttaka náist. Salurinn opnar kl.18:00 og er reiknað með að því ljúki um kl.22:00. Þorramatur verður á boðstólum frá Veisluþjónustu Múlakaffis. Miðaverð er kr. 4,500 á manninn. Pantanir þurfa að berast í síðasta lagi föstudaginn 13.febrúar með tölvupósti á:Â
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 121 122 123 124 125 126 127 128 129 130 Næsta > Síðasta >>
|
Síða 129 af 296 |